Fellsfjara
Lýsing
Fellsfjara munstur, en Fellsfjara við Jökulsárlón vara innblástur við hönnun á þessari uppskrift. Ég er svo hrifin af ísklenskri náttúru svo það var virkilega gaman að vinna þessa uppskrift. Fellsfjara lopapeysa er einföld og skemmtileg að prjóna, þrátt fyrir að hún geti litið út fyrir að vera mikil vinna. Það kemur einnig skemmtilega út sleppa litunum á ermum og bol, og prjóna aðeins berustykkið.
Fellsfjara uppskrift er einnig fáanleg í barnastærðum.
Stærðir (XXS) XS (S) M (L) XL (XXL) 3XL (4XL) 5XL
Yfirvídd – Lengd á bol – Ermalengd – Ermavídd
Garn: Léttlopi frá Istex – 50 gr – 100 m
Litur A Flöskugrænn 1405 XXS(5) XS(6), S(6), M(7), L(8), XL(9), XXL(10), 3XL(11), 4XL(12) 5XL(12)
Litur B Hvítur 0051 XXS (1) XS(2), S(2), M(2), L(3), XL(3), XXL(3), 3XL(3), 4XL(3), 5XL(3)
Litur C Jökulblágrænn 1404 XXS(1) XS(1), S(1), M(2), L(2), XL(2), XXL(2), 3XL(2), 4XL(2), 5XL(2)
Prjónar: 5 mm
Prjónafesta 18 l/26 raðir á 10×10 cm
ATH: Uppskriftin er prjónuð frekar fast svo þið gætuð þurft að nota prjóna 4,5mm eða jafnvel 4mm, ekki er mælt með að sleppa prjóna festunni.
Fellsfjara peysa er prjónuð neðan frá og upp, en fyrir þá sem eru vanir að prjóna frá hálsmáli, þá er auðvelt að fylgja uppskriftinni öfuga leið.
Athugið að ef þú þarft stærri yfirvídd en er uppgefið í uppskriftinni, ekki hika við að hafa samband og ég aðstoða þig með að reikna út réttan lykkjufjölda.
1.100 kr.










