Um Lopamunstur

Rakel heiti ég og er á bakvið Lopamunstur. Ég gef út lopapeysu uppskriftir og kannski fjölbreyttari uppskriftir seinna. Ég vinn hjá fjármálafyrirtæki og sinni Lopamunstur á kvöldin og um helgar. Ég hef því aðeins tök á að svara tölvupóstum 1-2x í viku, svo ég þakka þolinmæðina og er virkilega þakklát fyrir alla sem kaupa af mér uppskrift 🖤
Í byrjun árs 2023 lenti ég í burnouti og langaði að prjóna, en fann að ég átti erfitt með að velja hvaða uppskriftir mig langaði að prjóna, svo ég ákvað að prufa að gera mín eigin munstur. Ég hef verið að prjóna síðan 2006, nánast eingöngu lopapeysur, svo mig langaði að prufa að gera mínar eigin lopapeysu uppskriftir.
Peysurnar mínar fengu rosalega góð viðbrögð á Instagram svo mig langaði að halda áfram að hanna munstur og ákvað að gera munstur með öllum 12 stjörnumerkjunum. Ástæðan fyrir því að sú hugmynd kom upp var að mér fannst svo erfitt að finna nafn á peysurnar og langaði að gera eitthvað sem myndi bara heita það sem það er. Viðbrögðin fór framúr öllum mínum villtustu væntingum og ég hef ekki getað hætt að skrifa uppskriftir síðan!
Ég ólst upp í sveit á Suðurlandi og hef unnið í ferðamannabransanum síðan 2016. Mér finnst ótrúlega gaman að eiga þátt í að kynna Ísland fyrir ferðamönnum og er stolt af því hvað við eigum fallega náttúru hérna sem og að deila okkar náttúru og menningu með öðrum. Ég er mikið í útivist og líður hvergi eins vel og uppi á fjöllum. Mér finnst íslenska lopapeysan vera ómissandi partur af útivist enda er hún fullkomin flík allan ársins hring hér á Íslandi.
Instagram reikninginn knitterfromiceland stofnaði ég til að halda utan um það sem ég var að prjóna og mögulega geta selt eina og eina peysu en svo þróuðust málin hratt út í að ég fór að gera mín eigin munstur. Þá ákvað að hafa Instagram reikninginn minn á ensku til að ná til sem flestra, en uppskriftirnar mínar eru bæði fáanlegar á íslensku og ensku eins og er en verða fáanlegar á fleiri tungumálum seinna.
Í vinnslu eru fullt af flottum hugmyndum sem ég hlakka mikið til að deila hér á síðunni. Þó svo að það hafi verið ofboðslega erfitt og vont að lenda í burnoutinu að þá kom líka margt jákvætt og skemmtilegt út úr því. Mér hefði aldrei dottið í hug að ég myndi nokkurn tímann gefa út lopapeysu uppskriftir en mér finnst þetta ótrúlega spennandi og gefandi og hlakka mikið til að halda áfram og gefa út fleiri uppskriftir.
