Sitkagreni

Lýsing

Sitkagreni munstur er hannað eftir uppáhalds greniténu mínu, svo mig langaði að hanna jólapeysu með því í munstrinu. Mig langaði að hanna klassískt munstur sem myndi passa allt árið. Sitkagreni uppskrift er einfölg og skemmtileg að prjóna eftir. 

 

 

Stærðir (XXS) XS (S) M (L) XL (XXL) 3XL (4XL) 5XL

Yfirvídd – Lengd á bol – Ermalengd – Ermavídd

XXS: 75,5 cm – 30 cm – 42 cm – 31 cm
XS: 82 cm – 32 cm – 44 cm – 31,5 cm
S: 89 cm – 34 cm – 46 cm – 34 cm
M: 95,5 cm – 36 cm – 47 cm – 35 cm
L: 102 cm – 38 cm – 48 cm – 36,5 cm
XL: 111 cm – 40 cm – 49 cm – 38 cm
XXL: 120 cm – 42 cm – 50 cm – 39 cm
3XL: 126,5 cm – 43 cm – 51 cm – 41,5 cm
4XL: 131 cm – 44 cm – 52 cm – 43 cm
5XL: 140 cm – 46 cm – 52 cm – 45 cm

 

Garn: Istex léttlopi eða Saga Wool frá Icewear Garn
Litur A 1000 XXS(6) XS(6) S(7) M(8) L(8) XL(9) XXL(10) 3XL(11) 4XL(11) 5XL(12)
Litur B 5128 XXS(1) XS(1) S(2) M(2) L(2) XL(2) XXL(2) 3XL(2) 4XL(3) 5XL(3)

 

Prjónar: 5 mm

Prjónafesta 18 l/26 raðir 10×10 cm

ATH: Uppskriftin er prjónuð frekar fast svo þið gætuð þurft að nota prjóna 4,5mm eða jafnvel 4mm, ekki er mælt með að sleppa prjóna festunni.

 

Sitkagreni peysa er prjónuð neðan frá og upp, en fyrir þá sem eru vanir að prjóna frá hálsmáli, þá er auðvelt að fylgja uppskriftinni öfuga leið.

 

Athugið að ef þú þarft stærri yfirvídd en er uppgefið í uppskriftinni, ekki hika við að hafa samband og ég aðstoða þig með að reikna út réttan lykkjufjölda.

1.100 kr.

- +
Shopping Cart
Scroll to Top