Ægishjálmur barna
Lýsing
Ægishjálmur uppskrift er fáanleg í barna og fullorðins stæðurm. Vegvísir uppskriftin mín hefur verið vinsælasta uppskriftin mín frá því hún kom út, svo mig langaði að gera Ægishjálminn í svipuðum stíl. Ægishjálmur barna lopapeysa er fáanleg í stærðum 1-12 ára.
Stærðir (eftir aldri) 1 (2) 4 (6) 7 (8) 10 (12)
Yfirvídd – Lengd á bol – Ermalengd – Ermavídd
Garn: Istex Léttlopi – 50g – 100m
Litur A Mórauður 0053 1(4), 2(4), 4(5), 6(5), 7(6), 8(6), 10(6), 12(7)
Litur B Ljósmórauður 0086 1(1), 2(1), 4(1), 6(1), 7(1), 8(1), 10(1), 12(1)
Prjónar: 5 mm
Prjónafesta 18 l/26 raðir 10×10 cm
ATH: Uppskriftin er prjónuð frekar fast svo þið gætuð þurft að nota prjóna 4,5mm eða jafnvel 4mm, ekki er mælt með að sleppa prjóna festunni.
Ægishjálmur peysa er prjónuð neðan frá og upp.
1.100 kr.













