Ægishjálmur

Lýsing

Ægishjálmur uppskrift er nú fáanleg fyrir Léttlopa en hún er nú þegar til í fullorðins stærðum fyrir Álafosslopa og einnig í barnastærðum. Mig langaði að gera mína útgáfu af Ægishjálminum sem lopapeysu munstur. Ægishjálmur munstur er einfalt og fljótlegt að prjóna.

 

Stærðir (XXS) XS (S) M (L) XL (XXL) 3XL (4XL) 5XL

 

Yfirvídd – Lengd á bol – Ermalengd – Ermavídd

XXS: 73 cm – 30 cm – 42 cm – 31 cm
XS: 78 cm – 32 cm – 44 cm – 31,5 cm
S: 84 cm – 34 cm – 46 cm – 33 cm
M: 93 cm – 36 cm – 47 cm – 34 cm
L: 104 cm – 38 cm – 48 cm – 36,5 cm
XL: 112 cm – 40 cm – 49 cm – 39 cm
XXL: 122 cm – 42 cm – 50 cm – 41 cm
3XL: 135,5 cm – 43 cm – 51 cm – 42 cm
4XL: 140 cm – 44 cm – 52 cm – 44 cm
5XL: 144 cm – 46 cm – 52 cm – 45,5 cm

 

 

Garn: Istex Léttlopi – 50 gr dokkur – 100m
Litur A 1000 XXS(6), XS(6), S(7), M(8), L(8), XL(9), XXL(11), 3XL(12), 4XL(13), 5XL(14)
Litur B 9059 XXS(2), XS(2), S(2), M(2), L(2), XL(2), XXL(2), 3XL(2), 4XL(2), 5XL(2)

 

Prjónar: 5 mm

Prjónafesta 18 l/26 raðir á 10×10 cm
ATH: Uppskriftin er prjónuð frekar fast svo þið gætuð þurft að nota prjóna 4,5mm eða jafnvel 4mm, ekki er mælt með að sleppa prjóna festunni.

 

Ægishjálmur peysa er prjónuð neðan frá og upp, en fyrir þá sem eru vanir að prjóna frá hálsmáli, þá er auðvelt að fylgja uppskriftinni öfuga leið.

 

Athugið að ef þú þarft stærri yfirvídd en er uppgefið í uppskriftinni, ekki hika við að hafa samband og ég aðstoða þig með að reikna út réttan lykkjufjölda.

1.100 kr.

- +
Shopping Cart
Scroll to Top