Andvari

Lýsing

Andvari lopapeysa. Andvari hesta munstur er prjónuð að neðan og upp. Uppskriftin er skrifuð fyrir léttlopa en hægt er að nota hvaða garn sem passar við sömu prjónfestu.

 

Stærðir A-G *Athugið að þessar stærðir eru ekki hefðbundnu XXS-5XL sem eru á uppskriftunum mínum. Þar sem munstur endurtekningin er svo mikil urðu stærðirnar aðeins óhefðbundnar, svo það er mikilvægt að skoða stærðatöfluna vel.

 

Einnig er mikilvægt að taka það fram að þrátt fyrir að uppskriftin sé auðlesin og byrjendavæn að lesa og fara eftir, að þá eru margar umferðir í axlastykkinu með 3 liti á sama tíma og langt á milli lita sem getur reynst erfitt fyrir byrjendur.

 

Yfirvídd – Lengd á bol – Ermalengd – Ermavídd

 

A: 69 cm – 30 cm – 42 cm – 30 cm
B: 76,5 cm – 32 cm – 44 cm – 33 cm
C: 91 cm – 36 cm – 46 cm – 35,5 cm
D: 105,5 cm – 38 cm – 47 cm – 38 cm
E: 118 cm – 40 cm – 48 cm – 41 cm
F: 132 cm – 42 cm – 50 cm – 42 cm
G: 149 cm – 46 cm – 52 cm – 44 cm

Garn: Léttlopi frá Istex – 50 gr – 100 m

Litur A Rust 9427 A(6), B(6), C(8), D(10), E(12), F(13), G(14)
Litur B Black 0059 A(1), B(1), C(1), D(1), E(1), F(2), G(2)
Litur C White 0051 A(2), B(2), C(2), D(2), E(2), F(3), G(3)

 

Prjónar: 5 mm

Prjónafesta 18 l/26 raðir á 10×10 cm

ATH: Uppskriftin er prjónuð frekar fast svo þið gætuð þurft að nota prjóna 4,5mm eða jafnvel 4mm, ekki er mælt með að sleppa prjóna festunni.

 

Peysan er prjónuð neðan frá og upp, en fyrir þá sem eru vanir að prjóna frá hálsmáli, þá er auðvelt að fylgja uppskriftinni öfuga leið, og taka saman þar sem stendur auka út.

1.100 kr.

Shopping Cart
Scroll to Top