Hrúturinn

Lýsing

Hrúturinn lopapeysu munstur er partur af stjörnumerkja seríunni minni þar sem ég setti öll stjörnumerkin í lopapeysu munstur. 

 

Stærðir (XXS) XS (S) M (L) XL (XXL) 3XL (4XL) 5XL

 

Yfirvídd – Lengd á bol – Ermalengd – Ermavídd
XXS: 73 cm – 30 cm – 42 cm – 30 cm
XS: 78 cm – 32 cm – 44 cm – 31 cm
S: 82 cm – 34 cm – 46 cm – 32 cm
M: 90 cm – 36 cm – 47 cm – 34 cm
L: 103 cm – 38 cm – 48 cm – 36 cm
XL: 113 cm – 40 cm – 49 cm – 39 cm
XXL: 120 cm – 42 cm – 50 cm – 41 cm
3XL: 126,5 cm – 43 cm – 51 cm – 42 cm
4XL: 133 cm – 44 cm – 52 cm – 43 cm
5XL: 140 cm – 46 cm – 52 cm – 44 cm

 

Garn: Léttlopi frá Istex, 50g – 100m

Litur A Rauður 9434 XXS(6) XS(6), S(6), M(7), L(7), XL(9), XXL(10) 3XL(11) 4XL(12) 5XL(13)
Litur B Hvítur 0051 XXS(1) XS(1), S(2), M(2), L(2), XL(2), XXL(2) 3XL(3) 4XL(3) 5XL(3)
Litur C Svartur 0059 XXXS(1) XS(1), S(1), M(2), L(2), XL(2), XXL(2) 3XL(3) 4XL(3) 5XL(3)
Litur D Ljósbrúnn 1418 XXS(1) XS(1), S(1), M(1), L (1), XL (2), XXL(2) 3XL(2) 4XL(2) 5XL(2)

 

Prjónar: 5 mm

Prjónafesta 18 l/26 raðir 10×10 cm

ATH: Uppskriftin er prjónuð frekar fast svo þið gætuð þurft að nota prjóna 4,5mm eða jafnvel 4mm, ekki er mælt með að sleppa prjóna festunni.

 

Hrúturinn peysa er prjónuð neðan frá og upp, en fyrir þá sem eru vanir að prjóna frá hálsmáli, þá er auðvelt að fylgja uppskriftinni öfuga leið.

 

Athugið að ef þú þarft stærri yfirvídd en er uppgefið í uppskriftinni, ekki hika við að hafa samband og ég aðstoða þig með að reikna út réttan lykkjufjölda.

1.100 kr.

- +
Shopping Cart
Scroll to Top