Landeyjar Álafosslopi

Lýsing

Landeyjar lopapeysa er prjónuð úr Álafosslopa en er einnig fáanleg fyrir Léttlopia í bæði fullorðins og barna stærðum. Landeyjar munstur er einföld uppskrift að fylgja, prjónuð í hring.

 

Stærðir (XXS) XS (S) M (L) XL (XXL) 3XL (4XL) 5XL

 

Yfirvídd – Lengd á bol – Ermalengd – Ermavídd

XXS: 83 cm – 30 cm – 42 cm – 30,5 cm
XS: 89 cm – 32 cm – 44 cm – 32 cm
S: 95 cm – 34 cm – 46 cm – 33,5 cm
M: 101,5 cm – 36 cm – 47 cm – 34,5 cm
L: 107,5 cm – 38 cm – 48 cm – 37 cm
XL: 113,5 cm – 40 cm – 49 cm – 40 cm
XXL: 120 cm – 43 cm – 50 cm – 41,5 cm
3XL: 126 cm – 43 cm – 51 cm – 44,5 cm
4XL: 132 cm – 44 cm – 52 cm – 46 cm
5XL: 141,5 cm – 46 cm – 52 cm – 47 cm

 

Garn: Álafosslopi – Þrefaldur Plötulopi getur líka gengið

Litur A Grár 0058 XXS(4) XS(5), S(5), M(5), L(6), XL(7), XXL(7) 3XL(8) 4XL(9) 5XL(10)
Litur B Hvítur 0051 XXS(1) XS(1), S(1), M(1), L(1), XL(1), XXL(1), 3XL(1), 4XL(1), 5XL(1)

 

Prjónar: 7 mm og 6mm

Prjónafesta 13 l/18 raðir á 10×10 cm

ATH: Uppskriftin er prjónuð frekar fast svo þið gætuð þurft að nota prjóna 5mm, ekki er mælt með að sleppa prjóna festunni.

 

Landeyjar peysa er prjónuð neðan frá og upp, en fyrir þá sem eru vanir að prjóna frá hálsmáli, þá er auðvelt að fylgja uppskriftinni öfuga leið.

 

Athugið að ef þú þarft stærri yfirvídd en er uppgefið í uppskriftinni, ekki hika við að hafa samband og ég aðstoða þig með að reikna út réttan lykkjufjölda.

1.000 kr.

- +
Shopping Cart
Scroll to Top