Melodia
Lýsing
Melodia munstur varð til þegar mig langaði að gera munstur innblásið af píanó. Ég er ekki viss um að það hafi heppnast alveg, en hún er klárlega inblásin af píanó. Melodia uppskrift er einföld og skemmtileg að prjóna eftir. Melodia lopapeysa er einföld og skemmtileg að prjóna, henntar vel fyrir byrjendur. Það fylgir auka útgáfa af axlastykkinu þar sem hvíti liturinn er ekki með neðst, sú útgáfa er örlítið einfaldari að prjóna.
Stærðir (XXS) XS (S) M (L) XL (XXL) 3XL (4XL) 5XL
Yfirvídd – Lengd á bol – Ermalengd – Ermavídd
XXS: 71 cm – 30 cm – 42 cm – 31 cm
XS: 80 cm – 32 cm – 44 cm – 31 cm
S: 86,7 cm – 34 cm – 46 cm – 32 cm
M: 93 cm – 36 cm – 47 cm – 35,5 cm
L: 100 cm – 38 cm – 48 cm – 38 cm
XL: 106,7 cm – 40 cm – 49 cm – 40 cm
XXL: 113 cm – 43 cm – 50 cm – 42 cm
3XL: 126,5 cm – 43 cm – 51 cm – 42 cm
4XL: 133 cm – 44 cm – 52 cm – 43 cm
5XL: 140 cm – 46 cm – 52 cm – 44 cm
Garn: Léttlopi frá Istex – 50 gr – 100 m
Litur A Hafblámi 1701 XXS(6), XS(6), S(7), M(8), L(9), XL(10), XXL(10), 3XL(11), 4XL(12), 5XL(12)
Litur B Svartur 0059 XXS(1), XS(1), S(1), M(2), L(2), XL(2), XXL(2), 3XL(3), 4XL(3), 5XL(3)
Litur C Hvítur 0051 XXS(1), XS(1), S(1), M(1), L(1), XL(1), XXL(1), 3XL(1), 4XL(1), 5XL(1)
Prjónar: 5 mm
Prjónafesta 18 l/26 raðir á 10×10 cm
ATH: Uppskriftin er prjónuð frekar fast svo þið gætuð þurft að nota prjóna 4,5mm eða jafnvel 4mm, ekki er mælt með að sleppa prjóna festunni.
Melodia peysa er prjónuð neðan frá og upp, en fyrir þá sem eru vanir að prjóna frá hálsmáli, þá er auðvelt að fylgja uppskriftinni öfuga leið.
Athugið að ef þú þarft stærri yfirvídd en er uppgefið í uppskriftinni, ekki hika við að hafa samband og ég aðstoða þig með að reikna út réttan lykkjufjölda.
1.100 kr.










