Nautið

Lýsing

Nautið lopapeysu munstur er partur af stjörnumerkja seríunni minni þar sem ég setti öll stjörnumerkin í lopapeysu munstur. Nautið lopapeysa er skemmtileg og einföld uppskrift að prjóna eftir.

 

Stærðir (XXS) XS (S) M (L) XL (XXL) 3XL (4XL) 5XL

 

Yfirvídd – Lengd á bol – Ermalengd – Ermavídd
XS: 80 cm – 32 cm – 44 cm – 32 cm
S: 89 cm – 34 cm – 46 cm – 33 cm
M: 98 cm – 36 cm – 47 cm – 35,5 cm
L: 106,5 cm – 38 cm – 48 cm – 36,5 cm
XL: 111 cm – 40 cm – 49 cm – 40 cm
XXL: 118 cm – 42 cm – 50 cm – 41 cm
3XL: 125 cm – 43 cm – 51 cm – 43 cm
4XL: 133 cm – 44 cm – 52 cm – 44 cm
5XL: 142 cm – 46 cm – 52 cm – 44 cm

 

Garn: Léttlopi frá Istex
Litur A Barley 1419 XXS(6) XS(6) S(6) M(7) L(7) XL(8) XXL(9) 3XL(9) 4XL(10) 5XL(11)
Litur B White 0051 XXS(1) XS(1) S(1) M(2) L(2) XL(2) XXL(2) 3XL(2) 4XL(3) 5XL(3)
Litur C Dark Brown 0867 XXS(1) XS(1) S(1) M(1) L(2) XL(2) XXL(2) 3XL(2) 4XL(2) 5XL(2)
Litur D Rust 9427 XXS(1) XS(1) S(1) M(1) L (1) XL (1) XXL(1) 3XL(1) 4XL(2) 5XL(2)

 

Prjónar: 5 mm

Prjónafesta 18 l/26 raðir 10×10 cm

ATH: Uppskriftin er prjónuð frekar fast svo þið gætuð þurft að nota prjóna 4,5mm eða jafnvel 4mm, ekki er mælt með að sleppa prjóna festunni.

 

Nautið peysa er prjónuð neðan frá og upp, en fyrir þá sem eru vanir að prjóna frá hálsmáli, þá er auðvelt að fylgja uppskriftinni öfuga leið.

 

Athugið að ef þú þarft stærri yfirvídd en er uppgefið í uppskriftinni, ekki hika við að hafa samband og ég aðstoða þig með að reikna út réttan lykkjufjölda.

1.100 kr.

- +
Shopping Cart
Scroll to Top