Rok
Lýsing
Rok munstur var fyrsta lopapeysu uppskriftin sem ég gerði. Rok lopapeysa er með þetta klassíska lopapeysu útlit, en það eru nokkrar umferðir þar sem er prjónað með 3 liti í einu, sem gerir hana einstaklega fallega, en ekki eins skemmtilega að prjóna eftir. En það er þó alveg þess virði þegar peysan er tilbúin, og það er líka alltaf gott að reyna aðeins á þolinmæðina.
Stærðir (XXS) XS (S) M (L) XL (XXL) 3XL (4XL) 5XL
Yfirvídd – Lengd á bol – Ermalengd – Ermavídd
Garn: Plötulopi – 100 gr – 300 m
Litur A Hvítur 0001 XXS(2), XS(3), S(3), M(4), L(4), XL(4), XXL(5), 3XL(5), 4XL(6), 5XL(6)
Litur B Dökk brúnn 1032 XXS(1), XS(1), S(1), M(1), L(1), XL(1), XXL(1), 3XL(1), 4XL(1), 5XL(1)
Litur C Ljós búnn 1030 XXS(1), XS(1), S(1), M(1), L(1), XL(1), XXL(1), 3XL(1), 4XL(1), 5XL(1)
Prjónar: 5 mm
Prjónafesta 18 l/26 raðir á 10×10 cm
ATH: Uppskriftin er prjónuð frekar fast svo þið gætuð þurft að nota prjóna 4,5mm eða jafnvel 4mm, ekki er mælt með að sleppa prjóna festunni.
Rok peysa er prjónuð neðan frá og upp, en fyrir þá sem eru vanir að prjóna frá hálsmáli, þá er auðvelt að fylgja uppskriftinni öfuga leið.
Athugið að ef þú þarft stærri yfirvídd en er uppgefið í uppskriftinni, ekki hika við að hafa samband og ég aðstoða þig með að reikna út réttan lykkjufjölda.
1.100 kr.






