Santa barna
Lýsing
Santa barna uppskrift kemur í stærðum 1-14 ára. Mig langaði að gera jólapeysu í barna og fullorðins stærðum, með jólasveininum. Ég gerði því Stekkjastaur eftir íslensku jólasveinunum og svo Santa, eftir ‘jólasveininum’. Santa lopapeysa er einföld og skemmtileg að prjóna. Uppskriftin kemur í fullorðins stærðum um miðjan Nóvember.
Stærðir (eftir aldri) 1 (2) 4 (6) 8 (10) 14 (14) ára
Yfirvídd – Lengd á bol – Ermalengd – Ermavídd
1: 53 cm – 20 cm – 22 cm – 24 cm
2: 59 cm – 22 cm – 24 cm – 25,5 cm
4: 66,5 cm – 24 cm – 28 cm – 26,5 cm
6: 72 cm – 28 cm – 32 cm – 28 cm
8: 77,5 cm – 32 cm – 35 cm – 28 cm
10: 84 cm – 36 cm – 38 cm – 29 cm
12: 89 cm – 38 cm – 44 cm – 30 cm
14: 94,5 cm – 44 cm – 46 cm – 31 cm
Garn: Léttlopi frá Istex – 50g – 100m
Litur A Rauður 1(4), 2(4), 4(5), 6(5), 8(6), 10(7), 12(7), 14(8)
Litur B Hvítur 1(2), 2(2), 4(2), 6(2), 8(2), 10(2), 12(2), 14(2)
Litur C Ljós Brúnn 1(1), 2(1), 4(1), 6(1), 8(1), 10(1), 12(1), 14(1)
Prjónar: 5 mm
Prjónafesta 18 l/26 raðir 10×10 cm
ATH: Uppskriftin er prjónuð frekar fast svo þið gætuð þurft að nota prjóna 4,5mm eða jafnvel 4mm, ekki er mælt með að sleppa prjóna festunni.
Santa barna peysa er prjónuð neðan frá og upp, en fyrir þá sem eru vanir að prjóna frá hálsmáli, þá er auðvelt að fylgja uppskriftinni öfuga leið.
1.100 kr.










