Silfra
Lýsing
Silfra munstur er klassískt lopapeysu munstur. Silfra lopapeysa er einföld og skemmtileg að prjóna og er skrifuð fyrir Léttlopa. Silfra uppskrift er frábær fyrir byrjendur.
Stærðir (XXS) XS (S) M (L) XL (XXL) 3XL (4XL) 5XL
Yfirvídd – Lengd á bol – Ermalengd – Ermavídd
Garn: Léttlopi frá Istex – 50 gr – 100 m
Litur A Hvítur 0051 XXS(6) XS(6), S(7), M(8), L(9), XL(10), XXL(10), 3XL(11), 4XL(12) 5XL(12)
Litur B Svartur 0059 XXS (1) XS(1), S(1), M(2), L(2), XL(2), XXL(2), 3XL(3), 4XL(3), 5XL(3)
Litur C Jökulblágrænn 1401 XXS(1) XS(1), S(1), M(1), L(1), XL(1), XXL(1), 3XL(1), 4XL(1), 5XL(1)
ATH að ég notaði sérlitaðan léttlopa frá Handprjónasambandinu í lit C, svo ég setti þeim lit sem er næstur frá Istex. Ég veit að það var ekki mikið eftir hjá þeim.
Prjónar: 5 mm
Prjónafesta 18 l/26 raðir á 10×10 cm
ATH: Uppskriftin er prjónuð frekar fast svo þið gætuð þurft að nota prjóna 4,5mm eða jafnvel 4mm, ekki er mælt með að sleppa prjóna festunni.
Silfra peysa er prjónuð neðan frá og upp, en fyrir þá sem eru vanir að prjóna frá hálsmáli, þá er auðvelt að fylgja uppskriftinni öfuga leið.
Athugið að ef þú þarft stærri yfirvídd en er uppgefið í uppskriftinni, ekki hika við að hafa samband og ég aðstoða þig með að reikna út réttan lykkjufjölda.
1.100 kr.











