Stapavík
Lýsing
Stapavík er fyrsta munstirð sem ég hanna fyrir Álafosslopa. Mér fannst nafnið Stapavík passa vel þar sem ég átti dásamlegan dag að ganga að Stapavík síðasta sumar. Þvílíkt fallegur staður og skemmtileg ganga svo mér fannst nafnið passa vel við munstrið. Stapavík lopapeysa er með þessu klassíska lopapeysu útliti og er einfalt og skemmtilegt að prjóna.
Stærðir (XXS) XS (S) M (L) XL (XXL) 3XL (4XL) 5XL
Yfirvídd – Lengd á bol – Ermalengd – Ermavídd
Garn: Álafosslopi – Plötulopi getur líka gengið
Liturr A Hvítur 0051 XXS(4) XS(5), S(5), M(5), L(6), XL(7), XXL(7) 3XL(8) 4XL(9) 5XL(10)
Liturr B Hundasúra 1237 XXS (1) XS(1), S(1), M(2), L(2), XL(2), XXL(2) 3XL(3) 4XL(3) 5(3)
Liturr C Ljós rauðleitur 9972 1407 XXS(1) XS(1), S(1), M(1), L(1), XL(2), XXL(2) 3XL(2) 4XL(2) 5XL(2)
Prjónar: 6 mm og 5mm
Prjónafesta 13 l/18 raðir á 10×10 cm
ATH: Uppskriftin er prjónuð frekar fast svo þið gætuð þurft að nota prjóna 5mm, ekki er mælt með að sleppa prjóna festunni.
Stapavík peysa er prjónuð neðan frá og upp, en fyrir þá sem eru vanir að prjóna frá hálsmáli, þá er auðvelt að fylgja uppskriftinni öfuga leið.
Athugið að ef þú þarft stærri yfirvídd en er uppgefið í uppskriftinni, ekki hika við að hafa samband og ég aðstoða þig með að reikna út réttan lykkjufjölda.
1.100 kr.









