Tafl

Lýsing

Tafl lopapeysa. Tafl munstur er prjónuð að neðan og upp. Uppskriftin er skrifuð fyrir léttlopa en hægt er að nota hvaða garn sem passar við sömu prjónfestu.

 

Stærðir A-E *Athugið að þessar stærðir eru ekki hefðbundnu XXS-5XL sem eru á uppskriftunum mínum. Þar sem munstur endurtekningin er svo mikil urðu stærðirnar aðeins óhefðbundnar, svo það er mikilvægt að skoða stærðatöfluna vel.

 

 

Stærðir (A) B (C) D (E)

Yfirvídd – Lengd á bol – Ermalengd – Ermavídd

 

A: 70 cm – 32 cm – 44 cm – 30,5 cm
B: 85,5 cm – 36 cm – 47 cm – 32,5 cm
C: 101 cm – 40 cm – 49 cm – 38,5 cm
D: 116,5 cm – 43 cm – 51 cm – 43,5 cm
E: 132 cm – 46 cm – 52 cm – 47 cm

 

Garn: Léttlopi frá Istex – 50 gr – 100 m

Litur A Ljós Grár 0056 A(5), B(7), C(9), D(11), E(13)
Litur B Svartur 0059 A(2) B(2), C(3), D(3), E(3)
Litur C Hvítur 0051 A(1), B(2), C(2), D(2), E(3)

 

Prjónar: 5 mm

Prjónafesta 18 l/26 raðir á 10×10 cm

ATH: Uppskriftin er prjónuð frekar fast svo þið gætuð þurft að nota prjóna 4,5mm eða jafnvel 4mm, ekki er mælt með að sleppa prjóna festunni.

 

Peysan er prjónuð neðan frá og upp, en fyrir þá sem eru vanir að prjóna frá hálsmáli, þá er auðvelt að fylgja uppskriftinni öfuga leið, og taka saman þar sem stendur auka út.

1.100 kr.

Shopping Cart
Scroll to Top