Vargur barna
Lýsing
Vargur munstur er einfalt og og skemmtilegt að prjóna. Vargur uppskrift verður einnig fáanleg í fullorðins stærðum seinna í vor.
Stærðir (eftir aldri) 4 (5) 6 (7) 8 (10) 12 (14) ára
Yfirvídd – Lengd á bol – Ermalengd – Ermavídd
4: 66,5 cm – 26 cm – 28 cm – 25,5 cm
5: 69 cm – 28 cm – 30 cm – 26,5 cm
6: 73 cm – 30 cm – 32 cm – 28 cm
7: 78 cm – 32 cm – 34 cm – 28 cm
8: 82 cm – 34 cm – 36 cm – 29 cm
10: 87 cm – 38 cm – 40 cm – 30 cm
12: 91 cm – 40 cm – 42 cm – 31 cm
14: 95,5 cm – 42 cm – 44 cm – 31 cm
Garn: Léttlopi eða Saga Wool frá Icewear Garn – 50g – 100m
Litur A Svartur Tweed 4(4), 5(4), 6(4), 7(5), 8(5), 10(6), 12(6), 14(7)
Litur B Ljós Tweed 4(1), 5(2), 6(2), 7(2), 8(2), 10(2), 12(2), 14(2)
Prjónar: 5 mm
Prjónafesta 18 l/26 raðir 10×10 cm
ATH: Uppskriftin er prjónuð frekar fast svo þið gætuð þurft að nota prjóna 4,5mm eða jafnvel 4mm, ekki er mælt með að sleppa prjóna festunni
Vargur lopapeysa er prjónuð neðan frá og upp.
1.100 kr.










