Vegvísir
Lýsing
Vegvísir lopapeysu munstur er hannað eftir Vegvísinum. Vegvísirinn var ætlaður til að vernda fólk á ferðalögum og fyrir vondu veðri. Mér fannst það því fullkomin hugmynd að setja hann upp í lopapeysu munstur.
Stærðir (XXS) XS (S) M (L) XL (XXL) 3XL (4XL) 5XL
Yfirvídd – Lengd á bol – Ermalengd – Ermavídd
XXS: 73 cm – 30 cm – 42 cm – 31 cm
XS: 78 cm – 32 cm – 44 cm – 31,5 cm
S: 84 cm – 34 cm – 46 cm – 33 cm
M: 93 cm – 36 cm – 47 cm – 34 cm
L: 104 cm – 38 cm – 48 cm – 36,5 cm
XL: 112 cm – 40 cm – 49 cm – 39 cm
XXL: 122 cm – 42 cm – 50 cm – 41 cm
3XL: 135,5 cm – 43 cm – 51 cm – 42 cm
4XL: 140 cm – 44 cm – 52 cm – 44 cm
5XL: 144 cm – 46 cm – 52 cm – 45,5 cm
Garn: Léttlopi eða Plötulopi frá Istex eða Saga wool frá Icewear Garn
Litur A White 1000 XXS(6), XS(6), S(6), M(7), L(8), XL(9), XXL(11), 3XL(12), 4XL(13), 5XL(14)
Litur B Autumn Leaf 9059 XXS(2), XS(2), S(2), M(2), L(2), XL(2), XXL(2), 3XL(2), 4XL(2), 5XL(2)
Prjónar: 5 mm
Prjónafesta 18 l/26 raðir á 10×10 cm
ATH: Uppskriftin er prjónuð frekar fast svo þið gætuð þurft að nota prjóna 4,5mm eða jafnvel 4mm, ekki er mælt með að sleppa prjóna festunni.
Vegvísir peysa er prjónuð neðan frá og upp, en fyrir þá sem eru vanir að prjóna frá hálsmáli, þá er auðvelt að fylgja uppskriftinni öfuga leið.
Athugið að ef þú þarft stærri yfirvídd en er uppgefið í uppskriftinni, ekki hika við að hafa samband og ég aðstoða þig með að reikna út réttan lykkjufjölda.
1.100 kr.








