Vík barna

Lýsing

Nú er ein af vinsælustu uppskrftunum mínum, Vík munstur, loksinns fáanleg í barnastærðum. Vík barna munstur kemur í stærðum 1-10 ára og henntar vel bæði fyrir Léttlopa og Plötulopa. Vík barna lopapeysa er klassísk og einföld að prjóna og henntar því vel bæði fyrir byrjendur og vana prjónara.

 

Peysan er prjónuð neðan frá og upp.

 

Stærðir (eftir aldri) 1 (2) 3 (4) 5 (6) 7 (8) 9 (10) ára

Yfirvídd – Lengd á bol – Ermalengd – Ermavídd

1: 56,5 cm – 20 cm – 22 cm – 24 cm
2: 60 cm – 22 cm – 24 cm – 25,5 cm
3: 63 cm – 24 cm – 26 cm – 25,5 cm
4: 66,5 cm – 26 cm – 28 cm – 26,5 cm
5: 70 cm – 28 cm – 30 cm – 26,5 cm
6: 73 cm – 30 cm – 32 cm – 28 cm
7: 76,5 cm – 32 cm – 34 cm – 28 cm
8: 80 cm – 34 cm – 36 cm – 29 cm
9: 81 cm – 36 cm – 38 cm – 30 cm
10: 84 cm – 38 cm – 40 cm – 30 cm

 

Garn: Léttlopi – 50 gr – 100 m

Litur A Gráfjólublár 9432 1(4), 2(4), 3(4), 4(5), 5(5), 6(6), 7(6), 8(7), 9(7), 10(7)
Litur B Hvítur 0051 1(1), 2(1), 3(1), 4(1), 5(1), 6(1), 7(1), 8(1), 9(1), 10(1)
Litur C Vetrarbraut 1705 1(1), 2(1), 3(1), 4(1), 5(1), 6(1), 7(1), 8(1), 9(1), 10(1).

 

Prjónar: 5 mm

Prjónafesta 18 l/26 raðir 10×10 cm

ATH: Uppskriftin er prjónuð frekar fast svo þið gætuð þurft að nota prjóna 4,5mm eða jafnvel 4mm, ekki er mælt með að sleppa prjóna festunni.

1.100 kr.

Shopping Cart
Scroll to Top