Algengar spurningar og svör
Fullorðins uppskriftirnar eru í stærðum XXS-5XL Barnastærðirnar eru frá 1-14 ára en það er aðeins mismunandi eftir hverri uppskrift.
Já, uppskriftirnar eru fyrir öll kyn. Uppskriftirnar eru “slim fit“ svo ef þú villt víðari snið að þá er gott að fara upp um stærð. En það er alltaf best að skoða málin vel áður en þú velur hvaða stærð henntar þér best.
Nei alls ekki, það má nota hvaða garn svo lengi sem það gengur upp í prjónastærðina. Gættu þess þó að þvo prónfestuprufuna áður en þú byrjar að nota annað en uppgefið garn.
Já sjálfsagt mál. Endilega sendu mér tölvupóst eða skilaboð á Instagram og ég aðstoða þig að reikna út stærð fyrir þig.
Já, allar uppskriftirnar eru á Ravelry og hægt að bæta við sem verkefni, en þær eru þó ekki allar í sölu á Ravelry. Sumar eru engöngu seld hér á lopamunstur.is
Allar uppskriftirnar eru bæði á íslensku og á ensku. Sumar er verið að þýða á Þýsku, Spænksu, Finnsku og Hollensku.
