Takk

Lýsing

Takk uppskrift er og verður frí hér á lopamunstur.is. Mig langaði að bjóða upp á eina fría uppskrift og fann ekkert frumlegra nafn á hana en Takk. Takk munstur er einfalt og skemmtilegt að prjóna. Takk lopapeysa er prjónuð úr Álafosslopa.

Takk uppskrift frábær fyrir byrjendur og auðvelt að fara eftir. Hún er líka fullkomin til að sækja og skoða ef þú ert óviss eða forvitin að sjá hvernin ég set upp mínar uppskriftir.

 

Stærðir (XXS) XS (S) M (L) XL (XXL) 3XL (4XL) 5XL

Yfirvídd – Lengd á bol – Ermalengd – Ermavídd

XXS: 83 cm – 30 cm – 42 cm – 30,5 cm
XS: 89 cm – 32 cm – 44 cm – 32 cm
S: 95 cm – 34 cm – 46 cm – 33,5 cm
M: 101,5 cm – 36 cm – 47 cm – 34,5 cm
L: 107,5 cm – 38 cm – 48 cm – 37 cm
XL: 113,5 cm – 40 cm – 49 cm – 40 cm
XXL: 120 cm – 43 cm – 50 cm – 41,5 cm
3XL: 126 cm – 43 cm – 51 cm – 44,5 cm
4XL: 132 cm – 44 cm – 52 cm – 46 cm
5XL: 141,5 cm – 46 cm – 52 cm – 47 cm

 

Garn: Álafosslopi – Þrefaldur plötulopi getur líka gengið

Litur A Rauðmóleitur 9973 XXS(4), XS(5), S(5), M(5), L(6), XL(6), XXL(7), 3XL(7), 4XL(8), 5XL(8)
Litur B Hvítur 0051 XXS(1), XS(1), S(1), M(2), L(2), XL(2), XXL(2), 3XL(2), 4XL(2), 5(2)
Litur C Hundasúra 1237 XXS(1), XS(1), S(1), M(1), L(1), XL(1), XXL(1), 3XL(1), 4XL(1), 5XL(1)

 

Prjónar: 7 mm og 6mm

Prjónafesta 13 l/18 raðir á 10×10 cm

 

ATH: Uppskriftin er prjónuð frekar fast svo þið gætuð þurft að nota prjóna 7mm, ekki er mælt með að sleppa prjóna festunni.

Takk peysa er prjónuð neðan frá og upp, en fyrir þá sem eru vanir að prjóna frá hálsmáli, þá er auðvelt að fylgja uppskriftinni öfuga leið.

0 kr.

- +
Shopping Cart
Scroll to Top