Landeyjar Léttlopi
Lýsing
Landeyjar munstur er klassískt lopapeysu munstur fyrir Léttlopa en er einnig fáanleg í barnastærðum og fullorðins stærðum í Álafosslopa. Landeyjar uppskrift er einföld og skemmtileg að prjóna eftir. Landeyjar lopapeysa er fullkomin uppskrift fyrir byrjendur.
Stærðir (XXS) XS (S) M (L) XL (XXL) 3XL (4XL) 5XL
Yfirvídd – Lengd á bol – Ermalengd – Ermavídd
XXS: 71 cm – 30 cm – 42 cm – 31 cm
XS: 80 cm – 32 cm – 44 cm – 31 cm
S: 86,7 cm – 34 cm – 46 cm – 32 cm
M: 93 cm – 36 cm – 47 cm – 35,5 cm
L: 100 cm – 38 cm – 48 cm – 38 cm
XL: 106,7 cm – 40 cm – 49 cm – 40 cm
XXL: 113 cm – 43 cm – 50 cm – 42 cm
3XL: 126,5 cm – 43 cm – 51 cm – 42 cm
4XL: 133 cm – 44 cm – 52 cm – 43 cm
5XL: 140 cm – 46 cm – 52 cm – 44 cm
Garn: Léttlopi frá Istex – 50 gr – 100 m
Litur A Grágrænn 9421 XXS(6), XS(6), S(7), M(8), L(9), XL(10), XXL(10), 3XL(11), 4XL(12), 5XL(12)
Litur B Hvítur 0051 XXS (1), XS(1), S(1), M(2), L(2), XL(2), XXL(2), 3XL(3), 4XL(3), 5XL(3)
Prjónar: 5 mm
Prjónafesta 18 l/26 raðir á 10×10 cm
ATH: Uppskriftin er prjónuð frekar fast svo þið gætuð þurft að nota prjóna 4,5mm eða jafnvel 4mm, ekki er mælt með að sleppa prjóna festunni.
Landeyjar peysa er prjónuð neðan frá og upp, en fyrir þá sem eru vanir að prjóna frá hálsmáli, þá er auðvelt að fylgja uppskriftinni öfuga leið.
Athugið að ef þú þarft stærri yfirvídd en er uppgefið í uppskriftinni, ekki hika við að hafa samband og ég aðstoða þig með að reikna út réttan lykkjufjölda.
1.000 kr.



